flugfréttir
Þjálfunarmiðstöð United orðin sú stærsta í heimi
- Yfir 30 flughermir fyrir allar þær tegundir sem félagið hefur í flotanum
Mike McCasky, flugstjóri hjá United Airlines, við opnunarathöfnina við stækkun á þjálfunarmiðstöðinni í Denver
United Airlines hefur lokið við stækkun á þjálfunarmistöð sinni í Denver í Colorado sem er með stækkuninni orðin stærsta flugþjálfunarmiðstöð í heimi en þar er að finna hvorki meira né minna en yfir 30 flugherma.
Flughermarnir ná yfir allar þær tegundir flugvéla sem United Airlines hefur í flota sínum í dag en félagið hefur
sextán mismunandi tegundir í flotanum sem skiptast niður í Boeing 737-700, -800 og -900/900ER. Airbus A319/A320, Boeing 737
MAX, Boeing 757-200 og -300, Boeing 767-300ER/400ER, Boeing 777-200ER og -300ER og Boeing 787-8 og Boeing 787-9.
Yfir 12.000 flugmenn hjá United Airlines sækja þjálfunarmiðstöðina á hverju ári til að endurnýja réttindi sín auk þess
sem að minnsta kosti tólf önnur flugfélag fá að þjálfa sína flugmenn hjá United Airlines.
United Airlines mun ráða marga nýja flugmenn á næstunni til þess að fljúga þeim 263 nýju þotum sem eiga eftir að bætast við í flotann
á næstu árum en einnig þarf að ráða nýja flugmenn sem koma í stað þeirra sem hafa náð starfslokaaldri.
Flughermaverkfræðingarnir Samy Lord og Ben Morales framkvæma prófanir á nýjum Boeing 777-300ER hermi sem verður tilbúin til notkunar eftir nokkrar vikur
United Airlines hefur að undanförnu bætt við níu flughermum og eru þeir í dag 31 talsins en von er á
32. herminum í mars
á næsta ári.
„Við æfum og framkvæmum aðgerðir sem við myndum aldrei nokkurn tímann geta æft á flugi“, segir Mike McCasky, flugstjóri
hjá United Airlines sem hefur starfað sem flugmaður í 28 ár.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.