flugfréttir

Pirraður flugstjóri lét flugturninn heyra það óþvegið

- „Er búinn að fá mig fullsaddan af ástandinu hérna á Zurich“

12. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:54

Airbus A330 breiðþotu frá SWISS International Air Lines ýtt frá hlaði

Flugstjóri einn hjá svissneska flugfélaginu SWISS International Air Lines missti stjórn á skapi sínu á dögunum er hann lét flugumferðarstjóra heyra það óþvegið er hann lýst yfir andúð sinni á starfsháttunum á flugvellinum í Zurich.

Verið var að ýta einni þotu SWISS frá hlaði er flugstjórinn bað flugturninn um leyfi til að ræsa upp hreyflanna á ensku en flugumferðarstjóri gaf ekki heimild fyrir því og sagði að einhver seinkun yrði á því vegna takmarkanna á umferð um flughlaðið.

Flugstjórinn varð mjög pirraður og skipti yfir á sitt móðurmál og svaraði: „Þetta er orðið gjörsamlega óþolandi ástandið hérna í Zurich. Ég er búinn að fá mig fullsaddan af þessum flugvelli. Þið bara verðið að fyrirgefa“. - „Mjög fagmannlegt af þér“, var svarið sem flugstjórinn fékk í kjölfarið frá flugturninum.

Samtalið hélt svo áfram með því að flugstjórinn svaraði: „Það eru 30 mínútur frá því að við vorum tilbúnir til brottfarar og verðum við endanlega búnir að missa slottið okkar til brottfarar. Það er einnig líka mjög fagmannlegt“.

Konan í flugturninum svarar flugstjóranum því að ef hann vildi ræða þetta eitthvað frekar þá væri honum frjálst að hringja í hana í gegnum síma í stað þess að tjá sig með þessum hætti á tíðnini svo allir heyri.

Karin Müller, talsmaður SWISS flugfélagsins, segir í samtali vegna málsins að pirringur flugstjórans sé eitthvað sem er mjög skiljanlegt og að tjá sig um það með þessum hætti eru hreinlega mennsk viðbrögð. - „Þetta sýnir að flugstjórinn okkar var staðráðin í að vera stundvís og vera á áætlun“, svarar Müller.

Þrátt fyrir þetta verður þetta atvik tekið til skoðunar innan herbúða SWISS en Müller tekur fram að flugmenn félagsins og flugumferðarstjórum á Zurich-flugvellinum semur mjög vel og sé um mjög sjaldgæft tilfelli að ræða.

Müller tekur fram að óstundvísi hafi verið töluvert vandamál á flugvellinum í Zurich í sumar og má segja það sama um aðra flugvelli í Evrópu sem að mestu er tilkomið vegna veðurs, verkfallsaðgerða meðal flugumferðarstjóra og manneklu í flugumferðarstjórnun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga