flugfréttir

Boeing hefur áhyggjur af rekstri Jet Airways

- Eiga inni pöntun í 219 Boeing 737 MAX þotur

14. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:03

Boeing 737 MAX þota Jet Airways

Boeing segist hafa áhyggjur af fjárhagsstöðu indverska flugfélagsins Jet Airways þar sem félagið á inni pöntun í hvorki meira né minna en 219 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

„Við höfum að sjálfsögðu miklar áhyggjur. Við höfum afhent fimm Boeing 737 MAX þotur til félagsins. Í þessum iðnaði þá er ekki hægt að fá nógu marga viðskiptavini á hverjum degi“, segir Dinesh Keskar, varasölustjóri Boeing í Asíu.

Jet Airways, sem er næststærsta flugfélag Indlands, tilkynnti um 16,4 milljarða króna taprekstur eftir fyrsta ársfjórðung þessa árs og bað félagið starfsfólk félagsins um að taka á sig 25% launalækkun í ágúst.

Jet Airways, sem er að hluta til í eigu Etihad Airways, sem á 24 prósent í félaginu, segir að verið sé að leita að nýju fjármagni inn í reksturinn.

Etihad Airways, sem tilkynnti sjálft um taprekstur í kjölfar fjárfestinga félagsins í Air Berlin og Alitalia, hefur lýst því yfir að félagið muni ekki setja meira fé í rekstur Jet Airways.

Jet Airways hefur í dag 124 flugvélar í flotanum af gerðinni Boeing 737, Boeing 777, Boeing 787 auk véla af gerðinni Airbus A330 og ATR skrúfuflugvéla.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga