flugfréttir
Cobalt Air í alvarlegum rekstarvanda
Airbus A319 þota Cobalt Air á Barajas-flugvellinum í Madrid
Kýpverska flugfélagið Cobalt Air á í alvarlegum fjárhagserfiðleikum eftir að stjórnvöld í Kína ákváðu að frysta erlendar fjárfestingar meða kínverskra fyrirtækja.
Fram kemur að „stór hola“ hafi myndast í fjárhagi Cobalt Air upp á tæpan milljarð króna eftir að kínverskir
fjárfestar ákváðu að hætta við að standa við skuldbindingar sínar til félagsins.
Talið er að rekja megi vandamálsins til ákvörðunar ríkisstjórnar Kína sem hefur fyrirskipað fyrirtækjum að stöðva
erlendar fjárfestingar vegna „efnahagsstríðsins“ við Bandaríkin og ríkisstjórn Donalds Trumps.
Cobalt Air segir að verið sé að leita að nýju fjármagni til að fylla í gatið til að koma rekstri félagsins aftur í réttan kjöl
og er stjórn félagsins bjartsýn á að það eigi eftir að takast.
Cobalt Air var annað flugfélagið á Kýpur sem stofnað var eftir gjaldþrot Cyprus Airways sem hætti starfsemi sinni árið 2015 en fyrsta kýpverska flugfélagið sem byrjaði að fljúga eftir gjaldþrot þess var Tus Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.