flugfréttir
Airbus fær nýja pöntun í minni útgáfuna af A330neo
Tölvugerð mynd af Airbus A330-800neo í litum Kuwait Airlines
Airbus hefur fengið nýja pöntun í A330-800, minni útgáfuna af A330neo þotunni, en um nokkurt skeið hafði ekkert flugfélag átt inni pöntun í minni útgáfuna af Airbus A330neo.
Airbus missti síðustu pöntunina í A330-800 í febrúar á þessu ári er Hawaiian Airlines dró sína pöntun til baka
og ákvað að velja frekar Dreamliner-þotuna frá Boeing.
Uganda Airlines lagði inn pöntun í Airbus A330 í sumar og var það félag það fyrsta til að blása fersku lífi
í minni A330neo þotuna en nú hefur Kuwait Airlines gert samkomulag um kaup á átta breiðþotum
af gerðinni Airbus A330-800neo.
Kuwait Airlines hefur 27 þotur í flota sínum en sautján af þeim eru þotur frá Airbus af gerðinni Airbus A320 og
A330 en félagið á einnig von á fimmtán A320neo þotum og tíu A350-900 þotum. Auk þess hefur félagið
tíu Boeing 777-300ER þotur.
Kuwait Airlines á von á fyrstu A330-800 þotunni árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.