flugfréttir
Vilja opna hina flugbrautina á Gatwick-flugvelli
- 40 ára gamall sáttmáli við íbúa rennur út árið 2019
Frá Gatwick-flugvellinum í London
Félag breskra atvinnuflugmanna (BALPA) taka undir tillögu Gatwick-flugvallarins í London um að skoða þann möguleika á að nýta varaflugbraut vallarins fyrir hefðbundna flugumferð um flugvöllinn til að auka afköst hans.
Gatwick-flugvöllur er í dag stærsti flugvöllur heims af þeim flugvöllum sem hafa eina flugbraut er kemur að fjölda
flugtaka og lendinga en flugvöllurinn hefur þó aðra flugbraut sem eingöngu er notuð sem akbraut og í neyðartilfellum.
Með því að opna fyrir flugumferð á ný um nyrðri flugbrautina væri hægt að auka flugumferð um Gatwick-flugvöll um
um 30% sem samsvarar um 290 flugtökum og lendingum til viðbótar á dag.
Stjórn Gatwick-flugvallar mun á morgun leggja fram tillögu um langtímaáætlun flugvallarins („masterplan“) og er talið að í þeirri
tillögu felist hugmynd um að nýta norðurbrautina fyrir flugtök og lendingar fyrir minni flugvélar í Evrópuflugi á meðan
aðalfugbrautin (syðri flugbrautin) yrði notuð fyrir stærri flugvélar.
Aðalflugbrautin á Gatwick, 08R/26L brautin, er 3.316 metrar á lengd á meðan norðurbrautin, sem ekki er notuð í dag, er 2.565 metrar
en aðeins eru um 200 metar sem skilja brautirnar frá hvor annarri sem stangast á við öryggisreglur eins og staðan er í dag er kemur að lendingum og flugtökum á sama tíma á báðum brautum.
Gatwick-flugvöllur má aðeins nota norðurflugbrautin, 08L/26R, ef aðalflugbraut vallarins er ekki í notkun en nyrðri brautin
hefur þó ekki ILS blindaðflugsbúnað.
Gatwick er stærsti flugvöllur heims í flokki þeirra sem hafa aðeins eina flugbraut
Gatwick-flugvöllur hafði á sínum tíma sótt um leyfi fyrir nýrri flugbraut sem myndi rísa fyrir sunnan núverandi flugbraut með yfir 1 kílómetra aðskilnað sem myndi gera flugvellinum kleift að hafa flugtök og lendingar í gangi samtímis hlið við hlið.
Það var ekki samþykkt þar sem bresk stjórnvöld ákváðu frekar að gefa grænt ljós fyrir stækkun Heathrow-flugvallarins með
leyfisveitingu fyrir þriðju flugbrautinni.
BAPLA hefur nú lýst yfir stuðningi við Gatwick-flugvöll um að taka í notkun aftur norðurbrautina en Brian Strutton, yfirmaður
samtaka breskra atvinnuflugmanna, segir að eitthvað verði að gera svo hægt sé að auka flugumferð um Gatwick-flugvöll.
Íbúar ósáttir við áform um að opna hina flugbrautina fyrir flugtök og lendingar
Samtök þeirra íbúa sem búa nálægt Gatwick-flugvelli eru ekki ánægðir með áætlanir um að opna fyrir flugumferð um hina
flugbrautina og segir Sally Pavey, talsmaður samtakanna „Communities Against Gatwick Noise and Emission“, að sérstök
flugvallarnefnd var búin að ákveða að þriðja flugbrautin á Heathrow-flugvelli yrði sú lausnin við flugvallarvandann á suðvesturhorni Bretlands.
Fram kemur að 40 ára gamall sáttmáli, sem undirritaður var milli íbúa og Gatwick-flugvallarins, sem bannar notkun
á norðurflugbrautinni, rennur út á næsta ári, árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.