flugfréttir
Eldur kom upp í ATR flugvél í viðhaldsskýlí í Nígeríu
Eldurinn kom upp í flugvélinni sl. laugardag
Eldur kom upp í farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-200 er vélin var inni í viðhaldsskýli á flugvellinum í Lagos í Nígeríu sl. helgi.
Flugvélin var tengd við aflstöð (GPU) er eldurinn kom upp en samkvæmt heimildum þá er sagt að einn flugvirkinn
hafi svissað á rofa sem startar mótorum flugvélarinnar en við það kom upp neisti er skrúfublöðin rákust í aflstöðina.
Eldurinn er sagður hafa borist
fljótlega í dekkjum á hjólabúnaði vélarinnar og við það magnaðist hann og læsti sig í skrokk vélarinnar.
Þrír starfsmenn voru inni í flugvélinni og náðu þeir allir að forða sér út og sakaði þá ekki.
Flugvélin er frá flugfélaginu Overland Airways sem er lítið flugfélag sem stofnað var árið 2002 en félagið hefur aðsetur á Murtala Muhammed flugvellinum
í Lagos og telur flugflotinn níu flugvélar, sjö af gerðinni ATR 72 og 42 auk tveggja flugvéla af gerðinni
Beechcraft 1900D.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.