flugfréttir

Hjá Höllu opnar á Keflavíkurflugvelli

19. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:17

Fjölmenni var við opnun staðarins í gær fimmtudaginn 18. október á Keflavíkurflugvelli

Veitingastaðurinn Hjá Höllu opnaði formlega í gær í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli þar sem gengið er út í hlið C á flugvellinum.

Hjá Höllu var með hagstæðasta tilboðið í samkeppni um útleigu á aðstöðu undir veitingaþjónustu sem fram fór síðastliðið vor en veitingastaðurinn er rekinn af Höllu Maríu Svansdóttur sem hefur rekið veitingastað undir sama merki í Grindavík við góðan orðstír.

Hjá Höllu býður uppá eldbakaðar súrdeigspítsur, ferskan fisk frá Grindavík, fersk salöt sem og úrval rétta til að taka með sér í flug. 

Búið er að koma fyrir stórum gaseldofni þar sem pítsurnar eru bakaðar við háan hita á aðeins 90 sekúndum en þeir farþegar sem eru hvað mest að flýta sér geta gripið með sér tilbúnar pítsusneiðar.

„Við erum mjög spennt að hefja nú rekstur á staðnum en opnunin er búin að vera í undirbúningi í sumar, allt frá því að samkeppninni lauk. Það er búið að vera mikil áskorun að setja upp stað sem þennan í flugstöðinni enda fjölmörg atriði sem þarf að hafa í huga í slíku verkefni með allan þann fjölda farþega sem fer hér um á hverjum degi“, segir Halla María Svansdóttir.

„Viðtökurnar hafa verið afar góðar hingað til en staðurinn var opnaður til prufu fyrir nokkru síðan. Við bjóðum alla þá sem huga á ferðalög úr landi velkoma til okkar og prófa það sem við höfum uppá að bjóða.“

Fjölmenni var við opnun staðarins í gær fimmtudaginn 18. október og er staðurinn spennandi viðbót við þann fjölda veitingastaða sem fyrir eru í flugstöðinni.

Myndir frá opnuninni í gær:















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga