flugfréttir

Innanlandsflug hefst að nýju hjá Cubana eftir 5 mánaða hlé

27. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:28

ATR flugvél Cubana

Kúverska flugfélagið Cubana hefur hafið að nýju innanlandsflug á Kúbu eftir að innanlandsflugfloti félagsins var kyrrsettur fyrir fimm mánuðum sína.

Flugmálayfirvöld á Kúbu kyrrsettu allan Antonov An-158 flugflota félagsins í maí í kjölfar nokkurra atvika sem komu upp en félagið mun hefja innanlandsflug með ATR 72-500 flugvélum sem teknar hafa verið á leigu frá flugfélaginu Solenta í Suður-Afríku.

Fyrstu innanlandsflugferðirnar hófust á ný í gær með flugi frá Havana til Guantanamo, Baracoa og til Camaguey og munu fleiri áfangastaðir fylgja í kjölfarið á næstunni.

Cubana segir að skortur á varahlutum og lélegt aðgengi að þeim hafi gert félaginu erfitt fyrir og komið í veg fyrir að hægt var að framkvæma viðhald og viðgerðir á Kúbu.

Félagið hefur m.a. tekið á leigu flugvélar frá öðrum flugrekstraraðilum og þar á meðal frá Avion Express í Litháen, Blue Panorama á Ítalíu og frá Global Air í Mexíkó en ein Boeing 737-200 þota frá Global Air brotlent eftir flugtak frá Havana í maí á þessu ári sem kostaði 112 mannslíf.

Eftir slysið stöðvaðist allt innanlandsflug Cubana sem skilaði einnig leiguvélum til Avion Express og Blue Panorama.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga