flugfréttir

Take Flight valinn besti flugskóli Bandaríkjanna árið 2018

29. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:06

Diamond-flugfloti Take Flight Aviation flugskólans í Montgomery í New York

Take Flight Aviation flugskólinn í Montgomery í New York ríki hefur unnið verðlaunin The Flight Training Expericene Awards og með því verið útnefndur sem besti flugskóli Bandaríkjanna árið 2018 af einkaflugmannasamtökunum AOPA.

Take Flight þykir hafa að undanförnu veitt viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu samkvæmt könnun AOPA í Bandaríkjunum, persónulega þjónustu og frábæra nálgun í flugkennslu og þjálfun og jákvætt og vinalegt andrúmsloft.

Könnun AOPA náði til 954 bandarískra flugskóla og 1.849 flugkennara og fékk Take Flight Aviation flest atkvæðin í mismunandi flokkum.

Yfir 900 flugskólar í Bandaríkjunum voru með í könnun AOPA

Take Flight flugskólinn býður bæði upp á einkaflugmannsnám og atvinnuflugmannsnám í vinalegu umhverfi en skólinn hefur yfir að ráða kennsluvélar af gerðinni Diamond DA20, DA40 og Diamond DA42.

Flugskólinn hefur einnig hlotið verðlaunin AOPA´s President´s Choise Awards árið 2016 fyrir nýsköpun á sviði flugkennslu og Best Flight School in the Northeast verðlaunin árið 2017.

Árið 2017 var það SkyTrek Alaska Flight Training flugskólinn í Anchorage í Alaska sem hlaut sömu verðlaun og árið 2016 var það flugskólinn Flight Training Professionals í Orlando í Flórída.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga