flugfréttir
Sofnaði í fraktrými á Boeing 737 og endaði í Chicago
- Þreyttur flugvallarstarfsmaður sofnaði óvart innan um ferðatöskurnar
Flugvallarstarfsmaður þjónustar þotu hjá American Airlines
Að koma fyrir ferðatöskum um borð í flugvélar á flugvöllum getur verið þreytandi starf en þegar augnlokin voru farin að þyngjast á einum flugvallarstarfsmanni á flugvellinum í Kansas City á dögunum ákvað hann að leggja sig inni í fraktrými á einni Boeing 737 þotu hjá American Airlines innan um ferðatöskurnar.
Flugvallastarfsmaðurinn hafði enga vekjaraklukku sem varð til þess að hann sofnaði lengur en hann ætlaði sér
og vaknaði þegar þotan var komin á loft.
Atvikið átti sér stað sl. laugardag, þann 27. október, en enginn tók eftir því að hann hafði brugðið sér frá inn í fraktrýmið
og fór vélin í loftið með hann innanborðs klukkan 17:52 að staðartíma.
Starfsmaðurinn var lokaður inn í rýminu í rúma eina og hálfa klukkstund á meðan þotan flaug 646 kílómetra til O´Hare-flugvallarins
í Chicago og kom í ljós hvað gerðist hafði er starfsmenn flugvallarins í Chicago komu auga á hann er þeir opnuðu fraktrýmið þegar
þotan var komin að landgangi.
Starfsmaðurinn var yfirheyrður af lögreglunni í Chicago ásamt Bandarísku alríkislögreglunni (FBI) og sagðist hann hafa verið undir áhrifum áfengis og sofnað innan um ferðatöskurnar.
Fraktrými á Boeing 737 þotu
Manninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu og var hann ekki sakfelldur og var honum flogið til baka til
Kansas City en hann neitaði að gangast undir læknisskoðun eftir blundinn í fraktrýminu.
Samkvæmt fréttum þá hefur Piedmont Airlines sagt starfsmanninum upp störfum en hann er 23 ára.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem flugvallarstarfsmaður sofnar innan um ferðartöskurnar inn í vélinni því sambærilegt
atvik átti sér stað árið 2015 er starfsmaður á Seattle-Tacoma flugvellinum sofnaði í fraktrými á þotu Alaska Airlines og ferðaðist
óvart með vélinni til Los Angeles.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.