flugfréttir

Flugriti þotunnar fundinn

- Fannst á 30 metra dýpi skammt frá flaki vélarinnar

1. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:54

Flugritinn fannst í gærkvöldi að íslenskum tíma rétt eftir klukkan 22:00 en enn á eftir að finna hljóðrita þotunnar

Köfurum hefur tekist að finna annan af svörtu kössum Boeing 737 MAX þotu Lion Air sem fórst í hafið aðfaranótt mánudagsins við eyjuna Jövu í Indónesíu.

Um er að ræða flugrita þotunnar en rannsakendur segja að nauðsynlegt sé að finna báða svörtu kassanna til að hægt sé að varpa ljósi á orsök slyssins en flugritinn fannst um klukkan 22:05 í gærkvöldi.

„Við höfum fundið flugritann en hljóðritinn er ennþá ófundinn“, sagði Muhamad Syaugi, yfirmaður indónesísku björgunarsveitarinnar, í beinni útsendingu í fjölmiðlum í gær.

Það voru kafarar á vegum indónesíska sjóhersins sem náðu flugritanum af 30 metra dýpi en ekki var hægt að kafa eftir honum í gær vegna sterkra hafstrauma og þá kemur fram að flugritinn hafi verið farinn að grafast ofan í aur og drullu á hafsbotninum.

Flugritinn er varðveittur í vatni þar til hann verður afhentur sérfræðingum á vegum rannsóknarnefndarinnar

Flugritinn heldur utan um ýmsar upplýsingar varðandi fluglag vélarinnar á borð við flughraða, flughæð, stefnu, afl hreyfla auk annarra upplýsinga og kemur fram að flugritinn sé í þokkalegu ástandi og ekki illa farinn.

Flugritinn verður afhentur til sérfræðinga sem koma að rannsókn slyssins en bæði Boeing og CFM International koma einnig að rannsókninni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga