flugfréttir

Fundu vandamál í stjórnskjám á tveimur 737 MAX þotum

- Boeing aðstoðar við rannsóknina á Lion Air flugslysinu í Indónesíu

5. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:47

Boeing 737 MAX þoturnar koma með stórum stjórnskjám sem eru fimm talsins í stjórnklefanum

Sérfræðingar, sem vinna að rannsókn flugslyssins í Indónesíu, hafa komið auga á vandamál með stjórnskjái á tveimur Boeing 737 MAX þotum í flota Lion Air sem tengist meðal annars upplýsingum um flughraða.

Mögulega er um að ræða vandamál sem gæti tengst flugslysinu sl. mánudag en búið er að skoða tíu af þeim Boeing 737 MAX þotum sem Lion Air og Garuda Indonesia hafa fengið afhentar eftir fyrirskipun frá samgönguráðuneyti Indónesíu sem krafðist þess að allar Boeing 737 MAX þotur í landinu skildu sæta skoðun.

Sérfræðingar, sem vinna að rannsókn slyssins, hafa komið auga á vandamál með stjórnskjái á tveimur Boeing 737 MAX 8 þotum og þar að auki hefur fundist galli á annarri þotunni í búnaði sem sér um stöðugleika vélarinnar.

Flugvirkjar frá Boeing hafa unnið með rannsóknarnefnd flugslysa í Indónesíu að rannsókn slyssins en enn sem komið er hefur ekkert annað land fyrirskipað skoðun á Boeing 737 MAX þotum í öðrum löndum.

Hluti af kjarna hreyfils þotunnar og hjólastell er meðal þess braks sem búið er að ná af hafsbotni

Meðal atriða sem verða einnig skoðuð er hvort um galla sé að ræða og ef svo er hvort það sé bundið eingöngu við Boeing 737 MAX eða aðrar Boeing 737 þotur.

Boeing 737 MAX setti heimsmet í fyrra þar sem engin önnur farþegaþota hefur selst í eins mörgum upplögum á eins skömmum tíma eftir að hún kom á markað.

Boeing hefur í dag fengið pantanir í 4.783 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX og í september var búið að afhenda 219 eintök.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga