flugfréttir
Telja að hreyflarnir hafi starfað fullkomnlega eðlilega
Sérfræðingar, sem koma að rannsókn slyssins, telja að hreyflarnir hafi starfað fullkomnlega eðlilega
Rannsóknarnefnd flugslysa á Indónesíu segir að sá hreyfill sem búið er að ná af hafsbotni sem tilheyrði Boeing 737 MAX þotu Lion Air, sem fórst skömmu eftir flugtak frá Jakarta þann 29. október, starfaði fullkomnlega eðlilega fyrir slysið.
Soerjanto Tjahjono, yfirmaður rannsóknarnefndarinnar, sagði á blaðamannafundi í dag að ekkert bendir til þess að bilun
í hreyfli hafi orsakað slysið enn sem komið er en túrbúna hreyfilsins og brunahólf hans er þó enn ófundið.
Þá kemur fram að talið sé að flugvélin hafi fallið til jarðar á miklum hraða og ekkert bendir til þess að nein sprenging hafi komið
upp meðan vélin var í loftinu.
Búið er að hala niður 69 klukkustundum af göngum úr flugrita þotunnar sem spannar seinustu 19 flugferðir hennar en ekki
er enn búið að finna hljóðritann.
Ákveðið hefur verið að framlengja björgunaraðgerðum um þrjá sólarhringa til viðbótar í leit að frekara braki í sjónum
og þá hefur auka mannskapi verið bætt við til að aðstoða við björgunaraðgerðir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.