flugfréttir

Ný afhendingarmiðstöð Boeing í Kína verður opnuð í desember

- Málningarvinna og lokafrágangur á Boeing 737 MAX mun fara fram í Kína

6. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:19

Frá verksmiðjum Boeing í Renton þar sem Boeing 737 er framleidd

Fyrsta Boeing-þotan, sem afhent verður utan Bandaríkjanna og mun gangast undir málningarvinnu og lokafrágang á erlendri grund, verður afhent fyrir lok ársins í Kína.

Í desember mun Boeing taka í notkun nýja afhendingarmiðstöð í Kína í borginni Zhoushan en lokafrágangs- og afhendingarmiðstöðin verður notuð af Boeing og kínverska flugvélaframleiðandanum COMAC.

Gert er ráð fyrir að hægt verður að afgreiða og leggja lokahönd á allt að 100 nýjar þotur á ári þegar starfsemin verður komin á fullt skrið en Kína verður innan 20 ára stærsti viðskiptavinur Boeing.

Boeing mun einnig nota verksmiðjuna fyrir breytingar á Boeing 737-800 þotum sem verður breytt í fraktvélar fyrir Asíumarkað sem verður samstarfsverkefni Boeing Shanghai Aviation Services og Taikoo Aircraft Engineering Company.

Afhendingarmiðstöðin verður tekin í notkun í desember í borginni Zhoushan í Kína

Boeing hefur átt í nánu samstarfi við Kína sl. 40 ár en yfir 10.000 farþegaþotur sem Boeing hefur smíðað, sem eru í notkun í dag, voru framleiddar úr íhlutum sem smíðaðir voru í Kína.

Þess má geta að ein af hverjum þremur Boeing 737 MAX þotum, sem framleiddar eru í Renton í Washington í dag, eru smíðaðar fyrir kínversk flugfélög.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga