flugfréttir
Airbus A220 heimsækir Nepal
Airbus A220 þotan á flugvellinum í Kathmandu í Nepal
Airbus A220 þotan nýja, sem áður hét CSeries, lenti í fyrsta sinn í Nepal í gær en um var að ræða sýningarflug þar sem vélin hefur verið á sýningarferðalagi í Asíu og heimsótt fjögur lönd.
Airbus A220 þotan, sem er í litum airBaltic, lenti um helgina á flugvellinum í Kathmandu en vélin var einnig til sýnis á Zhuhai-flugsýningunni
í Chengdu í Kína og í Koh Samui í Tælandi en vélinni var í dag flogið til Tyrklands þar sem til stendur að sýna forsvarsmönnum
tyrkneskra flugfélaga þotuna.
„Þotan býður upp á einstaka eiginleika, þægindi og er flugfélögum mjög hagstæð í rekstri og hentar mjög vel fyrir flugvelli sem eru
staðsettir hátt yfir sjávarmáli“, segir í yfirlýsingu.
Bombardier og Airbus hafa fengið pantanir í 357 þotur af gerðinni Airbus A220-100 og A220-300 og hafa 47 eintök verið afhent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.