flugfréttir

Nýir gallar koma í ljós á Brandenburg-flugvelli

- Kostnaðurinn nálgast 1.000 milljarða króna - Hæpið að hann opni árið 2021

19. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 18:11

Upphaflega stóð til að opna Brandenburg-flugvöllinn árið 2010

Allt bendir til þess að opnun nýja Brandenburg-flugvallarins í Berlín verði slegið á frest enn einu sinni en sennilega hefur opnun nýs flugvallar aldrei verið frestað eins oft og þessum sem ber IATA kóðann BER.

Fyrr á þessu ári var staðfest að Brandenburg-flugvöllur myndi opna loksins árið 2021 en samkvæmt gögnum sem þýska dagblaðið Der Spiegel hefur undir höndum þá kemur fram að ólíklegt sé að hægt verði að opna flugvöllinn eftir þrjú ár.

Í nýrri skýrslu um stöðu framkvæmdanna, sem stjórn flugvallarins hefur sent til byggingaryfirvalda, kemur fram að nýir gallar hafi komið í ljós sem ekki hefur verið vitað um áður og bætist það ofan á langan lista af atriðum sem þarf að laga áður en hægt er að taka flugvöllinn í notkun.

Fram kemur að um mjög alvarlega galla sé að ræða en flestir þeirra snúa að brunakerfi flugstöðvarinnar en eins og stendur þá er eldvarnarkerfi, viðvörunarkerfi og vatnsúðunarkerfið í flugstöðinni mjög ábótavant.

Enn fleiri gallar hafa komið í ljós á Brandenburg-flugvellinum sem átti að opna árið 2010

Lütke Daldrup, framkvæmdarstjóri flugvallarins, segir að nýju gallarnir sem hafa komið í ljós séu það stórir að það verður krefjandi að halda áætlun um að opna flugvöllinn árið 2021 eins og nýjasta opnunardagsetning segir til um.

Kostnaður við Brandenburg hefur aukist um 4,1 milljarða evra sem samsvarar 575 milljörðum króna og er talið að heildarkostnaður við framkvæmdirnar sé að nálgast 930 milljarða og gæti hann hæglega farið í 1.000 milljarða þegar upp er staðið.

Þess má get að sex sinnum er búið að fresta opnun flugvallarins sem upphaflega átti að opna árið 2010 og þá er séð fram á að nauðsynlegt verður að stækka flugvöllinn enn frekar þar sem hann verður of lítill þegar hann opnar þar sem flugumferð hefur aukist til muna þann tíma sem hann hefur verið ónothæfur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga