flugfréttir
Jeju Air pantar fimmtíu Boeing 737 MAX 8 þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 8 í litum Jeju Air
Boeing hefur fengið pöntun frá suður-kóreska flugfélaginu Jeju Air sem hefur staðfest pöntun í 40 Boeing 737 MAX 8 þotur með kauprétt á tíu þotum til viðbótar.
Pöntunin er metin á 510 milljarða króna samkvæmt listaverði og munu afhendingar hefjast árið 2022 og standa
yfir til ársins 2026.
Jeju Air var stofnað árið 2005 og var félagið fyrsta lágfargjaldafélagið sem stofnað var í Suður-Kóreu og
flýgur félagið til áfangastaða í Kína, Japan, Laos, Macau, Malasíu, Filippseyjum, Taívan, Tælands og Víetnam
í millilandaflugi og til sjö áfangstaða í innalandsflugi.
Félagið hefur í dag 39 þotur í flota sínum sem allar eru af gerðinni Boeing 737-800 en í yfirlýsingu
frá Jeju Air vegna pöntunarinnar kemur fram að til greina komi að breyta pöntuninni með því að taka einhverjar
Boeing 737 MAX 10 þotur með sæti fyrir 230 farþega á einu farrými.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.