flugfréttir
2.000 Boeing-þotur til Kína
- Tvöþúsundasta þotan er af gerðinni 737 MAX og fór til Xiamen Airlines
Tvöþúsundasta þotan frá Boeing til Kína fór til flugfélagsins Xiamen Airlines
Boeing afhenti tvöþúsundustu farþegaþotuna sína til Kína á dögunum en það var flugfélagið Xiamen Airlines sem tók við þeirri þotu sem er af gerðinni Boeing 737 MAX.
Það tók Boeing fjóra áratugi að afhenda 1.000 þotur til Kína en seinustu 1.000 þotur hafa verið
afhentar til landsins á aðeins fimm árum.
Kína hefur náð því að verða stærsti markaðurinn fyrir Boeing þar sem fjórða hver
þota er afhent til kínversks flugfélags, annaðhvort í gegnum bein kaup eða í gegnum flugvélaleigu.
Tvöþúsundasta Boeing þotan, sem afhent var um helgina til Xiamen Airlines, skartar
sérstakri merkingu með áletruninni „2000th Boeing Aircraft for China“ og er þotan sú áttunda sem félagið fær af gerðinni Boeing 737 MAX.
Xiamen Airlines hefur stærsta Boeing-flota af öllum kínversku flugfélögunum og eru einungis
þotur frá Boeing í flotanum sem telja yfir 200 þotur.
Talið er að flugflotinn í Kína eigi eftir að tvöfaldast á næstu 20 árum en Boeing
gerir ráð fyrir að þörf sé fyrir 7.690 nýjar þotur í landinu til ársins 2038.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.