flugfréttir
Piaggio Aerospace sækir um gjaldþrotameðferð
- Óvissa um framtíð eins elsta flugvélaframleiðanda heims
Avanti Evo hafa lengi þótt mjög sérstakar flugvélar og fallegar
Óvissa er um framtíð ítalska flugvélaframleiðandans Piaggio Aerospace eftir að félagið fór fram á gjaldþrotameðferð í síðustu viku.
Piaggio Aerospace er hvað þekktast fyrir hina sérstöku Avanti Evo flugvél en fyrirtækið
er einn elsti flugvélaframleiðandi heims og má rekja rætur þess til ársins 1884 er fyrirtækið
var stofnað af Rinaldo Piaggio fyrir 134 árum síðan.
Hinsvegar á fyrirtækið, undir núverandi nafni, 100 ára afmæli en í yfirlýsingu frá Piaggio Aerospace
kemur fram að vegna óvissu á flugmarkaðnum hefur afkoma þess ekki staðið undir sér
og þá hefur seinkun á viðskiptum við ríkisstjórn Ítalíu með dróna í hernaðarlegum tilgangi einnig
sett strik í reikninginn.
Þá kemur fram að viðskipti með einkaþotur hafa ekki staðist væntingar en fyrirtækið
hefur á þessu ári aðeins afhent þrjú eintök af Avanti Evo flugvélinni.
Piaggio Avanti II á flugsýningu
Piaggio Aerospace hefur frá árinu 2015 verið í eigu fyrirtækisins Mubadala Development Company
í Dubai sem setti 255 milljónir evra í rekstur Piaggio með von um að framleiðandinn myndi byrja
að skila inn hagnaði árið 2021 en nú er útséð um að þær áætlanir muni ganga eftir.
Lítil eftirspurn hefur verið eftir Avanti Evo flugvélinni og kemur fram í yfirlýsingu að óvíst sé hver
framtíð fyrirtækisins er og hvort það sé einhver framtíð og grundvöllur til áframhaldandi reksturs.
Piaggio hefur einnig unnið að ómannaðri herútgáfu af Evo-flugvélinni sem kallast HammerHead
sem getur flogið í allt að 16 klukkustundir og náð 45.000 fet hæð og hafði ríkisstjórnin í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum panað átta slíkar flugvélar en þeim samningi var rift nýverið
eftir að framleiðandinn sótti um gjaldþrotameðferð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.