flugfréttir

WOW air flýgur jómfrúarflugið til Nýju-Delí á Indlandi

- 10 tíma flug frá Keflavík til Indlands

6. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:40

Áhöfnin í jómfrúarfluginu til Nýju-Delí í dag á Keflavíkurflugvelli

WOW air flaug í dag sitt fyrsta áætlunarflug til Nýju-Delí á Indlandi en aldrei áður hefur íslenskt flugfélag flogið áætlunarflug til Asíu og þá er um að ræða lengsta farþegaflug í íslenskri flugsögu frá Keflavíkurflugvelli.

Jómfrúarflugið fór í loftið frá Keflavík klukkan 12:14 í hádeginu og er um að ræða 10 tíma langt flug og var það Airbus A330 þotan TF-GAY sem lagði af stað í fyrsta Indlandsflugið.

Núna klukkan 16:32 var flugvélin stödd í 39.000 feta hæð í um 254 kílómetra fjarlægð norður af borginni Kazan í Rússlandi og var hún þá hálfnuð til Nýju-Delí en 5 klukkustunda flug er framundan til viðbótar til Indlands.

Áætluð lending á Indira Gandhi flugvellinum í Nýju-Delí er klukkan 21:20 í kvöld að íslenskum tíma eða klukkan 2:50 að indverskum tíma.

TF-GAY á Flightradar24.com kl. 16:27

Það var þann 15. maí á þessu ári sem WOW air tilkynnti að félagið myndi hefja flug til Indlands en undirbúningur vegna flugsins hafði þá staðið yfir í þónokkurn tíma með fundum með indverskum stjórnvöldum.

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, var ekki með í jómfrúarfluginu í dag en hann hefur haft í nógu að snúast varðandi fjárfestingar bandaríska fyrirtækisins Indigo Partners sem eru staddir hér á landi vegna kaupa á WOW air.

Athöfn fór fram á Keflavíkurflugvelli í morgun fyrir jómfrúarflugið þar sem farþegar þáðu veitingar á meðan Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, klippti á borða ásamt Skúla Mogensen, stofnanda WOW air.

WOW air mun fljúga þrisvar í viku frá Keflavíkurflugvelli til Nýju-Delí og geta bæði Íslendingar því flogið beint til Indlands auk þess sem markaður opnast fyrir Indverja til að fljúga til Norður-Ameríku með viðkomu á Íslandi og fyrir Bandaríkjamenn að ferðast til Indlands með viðkomu í Keflavík.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia og Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, klippa á borðann fyrir brottför til Indlands

„Það er söguleg stund þegar við í dag vígjum nýja flugleið flugfélagsins WOW air alla leið til Indlands,“ sagði Björn Óli. „Þetta er fyrsta áætlunarflug Íslendinga til Asíulanda og mikilvægur áfangi í ört vaxandi leiðakerfi félagsins, og einnig fyrir Keflavíkurflugvöll og okkur hjá Isavia.“, bætti Björn Óli við.

Farþegar ganga um borð í TF-GAY á leið til Indlands







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga