flugfréttir
Skimun fyrir umsækjendur í atvinnuflugmannsnám hjá Keili
Nemendur í atvinnuflugmannsnámi hjá Keili
Flugakademía Keilir hefur innleitt skimun í tengslum við atvinnuflugmannsnám á vegum skólans fyrir næsta vor en umsækjendur þurfa að þreyta sérstakt rafrænt hæfnispróf.
Skimun verður notuð bæði fyrir áfangaskipt atvinnuflugmannsnám og samtvinnað atvinnuflugmannsnám
sem hefst í maí 2019 en samtvinnað nám kallast er umsækjendur taka bæði bóklega og verklega hluta námsins samtímis.
Skimunin fyrir námið sem hefst næsta vor fer fram miðvikudaginn 30. janúar eftir áramót frá klukkan
10:00 til 16:00 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Mikil ásókn hefur verið í flugnám hjá Keili undanfarin ár og var fullbókað í alla bekkina í bæði áfangaskiptu (ATPL) og samtvinnuðu
atvinnuflugmannsnám (Integrated Professional Pilot Program) Flugakademíunnar á árinu 2018 og fer því nú hver að verða síðastur að skrá sig í
næstu námskeið sem hefjast í janúar og maí 2019.
Nánari upplýsingar um námið má nálgast á vefsíðu Flugakademíunnar en nemendur sem innrita sig í nám á INNU fá sendar allar
nauðsynlegar upplýsingar um skimunarferlið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.