flugfréttir
Hófu flugtak 400 metrum frá brautarenda á Gatwick
Dreamliner-þota Norwegian á Gatwick-flugvellinum
Flugmálayfirvöld í Bretlandi rannsaka nú atvik eftir að Dreamliner-þota af gerðinni Boeing 787-9 frá Norwegian notaði of stutta flugbraut í flugtaki á Gatwick-flugvellinum í London.
Flugmenn vélarinnar, sem var á leið til Buenos Aires í Argentínu, var gert að aka inn
á braut 26R eftir akbraut „Alpha November“ en sú akbraut er frábrugðin hefðbundnum
akbrautum fyrir þær sakir að hún liggur beint inn á brautarendann í beinu stefnu
við flugtaksstefnu á meðan flestar akbrautir sameinast flugbrautum frá annarri hvorri hliðinni.
Þá hefur brautarendinn verið færður sem þýðir að flugmennirnir hefðu átt að hefja flugtakið
strax þar sem TODA merking gefur til kynna hvar brautin byrjar en þess í stað óku
þeir um 417 metra áfram niður eftir brautinni áður en þeir gáfu fullt afl fyrir flugtak.
Flugumferðarstjóri gaf því gaum að þeir voru ekki að hefja flugtak á þeim stað
þar sem ætlast var til þess eftir að þeir höfðu fengið flugtaksheimild og hóf þotan
sig á loft of seint en samt áður en flugbrautin var á enda.
Atvikið átti sér stað þann 28. mars á þessu ári en í skýrslu frá breskum flugmálayfirvöldum
kemur fram að báðir flugmennirnir hafi haft á orði að það hafi ekki verið mikið eftir
af brautinni þegar þeir hófu sig á loft.
Fram kemur að ef eitthvað hefði komið upp í flugtakinu á borð við bilun í hreyfli þá
hefði flugvélin ekki náð að stöðva sig af í tæka tíð á brautinni og farið út af
brautarendanum og hefði hún því þurft að vera 12 tonnum léttari.
Atvikið átti sér stað að nóttu til en hvorugur flugmaðurinn varð var við
skilti sem tilgreindi „færðan brautarenda“ þrátt fyrir að við brautina var upplýst
ljósaskilti.
Í kjölfar atviksins var gefið út NOTAM skilaboð í þeim tilgangi að koma í veg
fyrir að slíkur ruglingur myndi endurtaka sig.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.