flugfréttir
Cirrus SR22 brotlenti í Frakklandi
- Þrír létust um borð
Flugvélin sem fórst bar skráninguna F-HUGE
Enginn komst lífs af úr flugslysi í Frakklandi er lítil flugvél af gerðinni Cirrus SR22 fórst í skóglendi nálægt bænum Beaubery í austurhluta Frakklands í gær.
Í flugvélinni var einn flugmaður og tveir farþegar en vélin fór í loftið frá flugvellinum
í Lognes í úthverfi Parísar og var förinni heitið til Villefranche-sur-Saône, skammt norður af Lyon.
Talið er að bilun hafi komið upp í mótor á sama tíma og slæmt veður var á svæðinu
en björgunarsveitir fundu flak vélarinnar nálægt bæ sem heitir Les Carges þremur
tímum eftir að vélarinnar var saknað.
Vitni segjast hafa heyrt flugvél fara yfir en skyndilega heyrðust hljóð frá hreyflinum
sem bentu til þess að eitthvað væri ekki með felldu og í kjölfarið heyrðust tveir
hvellir.
Það var flugumferðarstjóri í Saint-Yan sem tilkynnti um flugslysið en flugvélin kom niður við kastallann í Corcheval. Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi vinnur nú að rannsókn
slyssins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.