flugfréttir

Flaug síðasta flugið sitt í bleikum búning

- Lét sérsníða á sig bleikan flugmannabúning fyrir starfslokin

11. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:35

Bubba Sandidge hefur flogið fyrir American Airlines og AirCal frá árinu 1984

Eitt sinn skulu allir atvinnuflugmenn setja hattinn í hilluna og í flestum löndum er það þegar flugmenn ná 65 ára aldri.

Flugmaður einn í Bandaríkjunum ákvað að gera síðasta daginn í stjórnklefanum sérstakan og mætti hann til starfa í bleikum flugmannabúning sem hann hafði látið klæðskerasauma á sig og uppskar hann mikla athygli og fögnuð frá samstarfsfólki auk yfirmanna.

Bubba Sandidge flaug þann 6. desember sl. sitt síðasta flug sem flugstjóri á Boeing 787 hjá American Airlines en Bubba hefur verið í stjórnklefanum í 34 ár og byrjaði ferilinn sinn hjá flugfélaginu AirCal árið 1984.

Kapteinn Bubba tók frúnna með sér í síðasta flugið sitt sem var
til Auckland á Nýja-Sjálandi

Bubba lét sérhanna bleika búninginn á sig sem kemur með svörtum strípum á ermunum fyrir síðasta flugið á ferlinum sem var flug frá Los Angeles yfir Kyrrahafið til Auckland á Nýja-Sjálandi og til baka.

Samstarfsmenn Bubba höfðu ekki gleymt þessum tímamótum því hann fékk að sjálfsögðu sérbakaða tertu sem á stóð „Happy Retirement“.

Myndin sló í gegn á Reddit

Það var einn félagi flugmannsins sem upphafleag setti nokkrar myndir af honum á Fésbókarsíðu sína og skrifar hann við að Bubba hafi sagt á flugvellinum í Los Angeles fyrir síðustu ferðina: „What are they going to do, fire me?“

Áður en neinn vissi þá voru myndirnar komnar inn á samfélagsíðuna Reddit og hafa á einum sólarhring yfir 93.200 manns skoðað þráðinn og yfir 1.200 notendur skilið eftir ummæli og óskað Bubba til hamingju með tímamótin.

Meðal þeirra sem hafa skrifað ummæli við myndirnar af Bubba í bleika búningnum eru flugmenn sem hafa flogið með honum og segja þeir að hans verði saknað í stjórnklefanum og lýsa honum sem frábærum náunga.

Fleiri myndir:













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga