flugfréttir
Franskt fyrirtæki eignast helmingshlut í Gatwick
- Vinci Airports kaupir 50.01% hlut í næststærsta flugvelli Bretlands
Gatwick er annar stærsti flugvöllur Bretlands
Helmingshlutur Gatwick-flugvallarins hefur verið seldur til franska fyrirtækisins Vinci Airports sem hefur nú eignast 50.01% hlut í flugvellinum.
Vinci Airports segir að fyrirtækið muni greiða um 2.9 milljarða sterlingspunda
fyrir hlutinn sem nemur 428 milljörðum króna en núverandi eigandi, Global Infrastructure Partners, mun halda 49.99 prósenta hlutnum á móti Vinci.
Vinci er fjárfestingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framkvæmdum og stjórnun
á sviði samgangna og á fyrirtækið meðal annars og rekur 46 flugvelli í Frakklandi, Portúgal og Bretlandi auk flugvalla í Bandaríkjunum, Asíu og Suður-Ameríku.
Stewart Wingate, framkvæmdarstjóri Gatwick-flugvallarins, segir að farþegar
og viðskiptavinir muni ekki koma til með að finna fyrir neinum breytingum.
„Þetta eru góðar fréttir fyrir flugvöllinn þar sem þetta greiðir leiðina fyrir
enn frekari fjárfestingar í framkvæmdum á næstu árum. Við fljúgum eins og
er til 220 áfangastaða um allan heim og stefnum við á að gera enn betur á næstu
árum“, segir Wingate.
Vinci Airports sér fram á mörg tækifæri með kaupunum og bendir á að eitt
verkefnið sem farið verður í er að stækka Gatwick-flugvöll með því að taka
í notkun „hina“ flugbrautina sem hefur ekki verið notuð fyrir flugtök og lendingar
í mörg ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.