flugfréttir

Byrjað að rífa fyrstu Airbus A380 risaþotuna

- Hægt verður að endurnýta 92 prósent af hverri Airbus A380 þotu

1. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:31

Tvær af þeim fjórum Airbus A380 risaþotum sem voru í flota Singapore Airlines á Tarbes-Lourdes flugvellinum í Frakklandi

Hafist hefur verið handa við að rífa niður tvær Airbus A380 risaþotur sem áður flugu fyrir Singapore Airlines og er þetta í fyrsta sinn sem risaþotur fara í brotajárn.

Niðurrifið fer fram á Tarbes-Lourdes flugvellinum í Frakklandi við rætur Pýreneafjalla og eru fjórar Airbus A380 risaþotur staðsettar á flugvellinum sem allar bíða örlaga sinna og voru allar þoturnar í flota Singapore Airlines.

Eigandi risaþotnanna er þýska fyrirtækið Dr. Peters en fyrirtækinu tókst ekki að finna nýjan leigjanda að þotunum sem endurspeglar mjög erfiðan markað fyrir notaðar Airbus A380 risaþotur.

Í fyrstu voru allir vökvar tæmdir af vélinni og því næst var byrjað að skrúfa alla þá hluta sem hreyfast af vélinni, gluggar fjarlægðir og sæti og allt það sem hægt er að selja sem fyrst til flugrekanda sem einnig hafa Airbus A380 í flota sínum.

Varahlutir, sem fjarlægðir hafa verið, eru því næst athugaðir, þeim pakkað og settir í geymslu og gerðir klárir til þess að senda en næst tekur við að rífa niður skrokkinn sjálfan í heilum einingum og einhverjir hlutar eru nýttir aftur. Gert er ráð fyrir að hægt sé endurnýta um 92% af hverri risaþotu í varahluti.

Það er fyrirtækið Tarmac Aerosave sem sér um niðurrifið á risaþotunum tveimur en óvíst er með hvort að hinar tvær risaþoturnar verði einnig rifnar en þeim er haldið í flughæfu ástandi og eru tilbúnar til ferjuflugs ef nýr leigjandi finnst.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga