flugfréttir

4.3 milljarðar ferðuðust með flugi árið 2018

- 11,7 milljón farþega stíga um borð í farþegaflugvél á hverjum degi

2. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:12

Þrátt fyrir að flugfarþegum fjölgaði um 300 milljónir árið 2018 þá var aukningin meiri milli áranna 2017 og 2018

Um 4.3 milljarður flugfarþegar ferðuðust um háloftin með áætlunarflugi í heiminum árið 2018 samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaflugmálastofnunninni (ICAO) sem er auknin upp á 6.1 prósent samanborið við árið 2017.

Þetta jafngildir því að um 11,7 milljónir farþega eru að ferðast með flugi á hverjum degi um allan heim en um helmingur þeirra 1.4 milljarða farþega sem ferðuðust yfir alþjóðleg landamæri ferðuðust með áætlunarflugi.

Fjölgun flugfarþega milli ára hefur hinsvegar dregist saman þar sem 7.9% auknin varð milli áranna 2018 og 2017 en árið 2017 voru um 4 milljarður farþega sem ferðuðust með flugi.

Helmingi fleiri ferðast með flugi í dag en samanborið við árið 2006 þegar 2,2 milljarðar farþegar flugu með áætlunarflugi um allan heim og hefur farþegafjöldinn því tvöfaldast á 12 árum.

Yfir 104 þúsund flugtök og lendingar á hverjum degi

Fram kemur að allsstaðar í heiminum hafi aukningin í farþegaflugi dregist saman milli ára árið 2018 nema í Bandaríkjunum sem má rekja til þess að efnahagurinn vestanhafs hefur verið að styrkjast og þá hafa flugfélög í Kanada aukið umsvif sín í flugi til Bandaríkjanna.

Samkvæmt nýútgefinni skýrslu frá ICAO þá áttu sér stað 38 milljón brottfarir í heiminum árið 2018 sem jafngildir því að 104.109 brottfarir hafi átt sér stað daglega um allan heim og á hverri klukkustund hófu 4.337 flugvélar sig á loft einhversstaðar í heiminum.

ICAO segir að flugumferð haldi áfram að aukast og eftirspurn einnig og þá sérstaklega með tilliti til framboðs lágfargjaldafélaganna.

Anthony Philbin, upplýsingafulltrúi ICAO, segir að lokaskýrsla varðandi árið 2019 í fluginu verði birt í febrúar.

Því er spáð að farþegum eigi eftir að fjölga um 245 milljónir á þessu ári og er gert ráð fyrir að 4.588.000.000 farþegar muni ferðast með farþegaflugi árið 2019.

Flugvélar á leið í flugtak á Heathrow-flugvellinum í London







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga