flugfréttir

Sluppu með skrámur í fyrsta flugóhappi ársins

- Cessna 152 missti mótor í Tyrklandi og endaði í trjám

2. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:23

Flugvélin var í kennsluflugi þegar upp kom bilun í mótor

Karlmaður og kona á sextugsaldri sluppu með skrámur í fyrsta flugóhappi ársins í heiminum sem átti sér stað á Nýársdag en um var að ræða litla eins hreyfils flugvél af gerðinni Cessna 152 sem brotlenti í trjám í skóglendi í Tyrklandi.

Flugvélin, sem var í kennsluflugi á vegum flugskóla eins í Istanbúl, var í um 88 kílómetra fjarlægð austur af borginni þegar bilun kom upp í mótor en um borð var nemandi og flugkennari.

Til stóð að nauðlenda flugvélinni á akri en vélin endaði inn í trjám og slasaðist flugkennarinn, sem er 53 ára, lítillega við höggið en nemandann, sem er kona á sextugsaldri, sakaði ekki.

Slysið er eitt af þeim tveimur sem áttu sér stað í heiminum í gær á Nýársdag en einn lést í gær er þyrla af gerðinni Robinson R44 Raven II brotlenti á götu í bænum Ubatuba milli Sao Paulo og Rio de Janeiro í Brasilíu en sá látni var gangandi vegfarandi sem varð fyrir þyrlunni.

Nýársdagur í gær kom betur út ef borið er saman við Nýársdag árið 2018 þegar fjögur óhöpp og flugslys áttu sér stað í heiminum á fyrsta degi ársins en af þeim voru tvö í Bandaríkjunum, eitt í Suður-Afríku og eitt í Nýja-Sjálandi.

Í þeim slysum komu við sögu flugvélar af gerðinni Vans RV-7, Socata TB21 Trinidad TC, Cessna 150M og þyrla af gerðinni Eurocopter AS 350B3+ Ecureuil.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga