flugfréttir
Ryanair UK fær breskt flugrekstrarleyfi
- Forða sér frá mögulegri röskun eftir að Brexit verður að veruleika
Boeing 737-800 þota Ryanair
Ryanair hefur fengið í hendurnar breskt flugrekstrarleyfi sem gerir félaginu kleift að fljúga innanlandsflug í Bretlandi og einnig flug milli Bretlands og annarra lands sem eru ekki í Evrópusambandinu.
Félagið stofnaði dótturfélagið Ryanair UK sem fær flugrekstrarleyfi frá breskum flugmálayfirvöldum og hefur
Ryanair með því tryggt sér að verða fyrir raski þann dag sem Bretar ganga út úr Evrópusamstarfinu.
„Við tökum ákvörðun breskra flugmálayfirvalda um að afhenda leyfið til Ryanair UK fagnandi og munum við því
geta haldið áfram að fljúga til og frá Bretlandi eftir að Brexit gengur í gegn“, segir Juliusz Komorek hjá Ryanair.
Félagið segir að með þessu verði engin röskun á flugi í sumar þegar háannatími flugfélaganna gengur í garð
sem annars hefði haft áhrif á ferðatilhögum Breta er þeir halda í sumarfrí.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.