flugfréttir

Hawaiian Airlines kveður Boeing 767 þotuna

- Síðasta flug félagsins með Boeing 767 var flogið í gær

7. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 23:58

Boeing 767 breiðþota Hawaiian Airlines

Hawaiian Airlines flaug í dag sitt síðasta flug með Boeing 767 og hefur félagið því nú hætt öllu áætlunarflugi með þeirri tegund af farþegaþotu.

Síðasta flugið með Boeing 767 var flug HA19 frá Sacramento í Kaliforníu til Honolulu með þotu sem ber skráninguna N594HA og er sú flugvél af gerðinni Boeing 767-300ER.

Hawaiian Airlines hefur haft Boeing 767 í flotanum í 17 ár en félagið fékk fyrstu Boeing 767 þotuna afhenta árið 2001 og leysti hún af hólmi McDonnell Douglas DC-10 þoturnar.

Félagið hafði átján Boeing 767 þotur þegar mest var árið 2007 og spiluðu þoturnar stórt hlutverk í umsvifum félagsins frá Hawaii-eyjum til meginlands Bandaríkjanna.

Árið 2010 byrjaði félagið að losa sig við Boeing 767 þoturnar á sama tíma og fyrsta Airbus A330 breiðþotan kom í flotann og í kjölfarið pantaði félagið sína fyrstu Dreamliner-þotu frá Boeing.

Fá næstum allar áframhaldandi líf hjá öðrum flugfélögum

Örlög Boeing 767 þotnanna hjá félaginu voru endanlega ráðin þegar ákveðið var að panta Airbus A321neo þotur sem ákveðið var að myndu koma í stað Boeing 767 en vandamál með hreyfla á A321neo varð til þess að þær fengu að vera aðeins lengur í flotanum.

Ekki fara allar Boeing 767 þotur Hawaiian Airlines í brotajárn þar sem United Airlines pantaði þrjár úr flota félagsins til sín sem munu fá áframhaldandi líf í farþegaflugi.

Þá hefur Air Canada einnig tekið við fjórum Boeing 767 þotur frá Hawaiian Airlines sem fóru í flota dótturfélagsins Rouge og Azur Air Russia hefur fengið fjórar Boeing 767 þotur frá Hawaiian.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga