flugfréttir
Pantanir í 10 risaþotur fjarlægðar af lista Airbus
Frá samsetningarsal Airbus í Toulouse
Airbus hefur fjarlægt pantanir í tíu Airbus A380 risaþotur af pantanalista sínum en þoturnar voru pantaðar af óþekktum viðskiptavini.
Risaþoturnar tíu voru pantaðar í mars árið 2014 en aldrei hefur verið gefið upp hvaða flugfélag eða viðskiptavinur
stendur á bakvið pöntunina en sumir vilja meina að það sé flugfélagið Hong Kong Airlines sem hafi átt þessa pöntun.
Með þessu lækkar heildarfjöldi þeirra risaþotna sem pantaðar hafa verið frá upphafi úr 331 niður í 321 risaþotu
en í dag hafa 234 eintök verið afhent og á því eftir að framleiða og afhenda 87 risaþotur á næstu árum.
Airbus afhenti tólf Airbus A380 risaþotur árið 2018 en framleiðslan verður á þessu ári skorin niður í aðeins átta
risaþotur árið 2019 eða um 0,6 á mánuði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.