flugfréttir

Etihad segir upp 50 flugmönnum

- Hætta við pöntun í tíu Airbus A320neo þotur

11. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:25

Airbus A380 risaþota Etihad Airways á flugvellinum í Abu Dhabi

Etihad Airways hefur tilkynnt um töluverðan niðurskurð í rekstri félagsins og verður 50 flugmönnum sagt upp auk þess sem félagið ætlar að hætta við pöntun sína í Airbus A320neo þoturnar.

Í dag starfa 2.065 flugmenn hjá Etihad Airways en 160 af þeim eru ekki að fljúga hjá félaginu í augnablikinu þar sem félagið hafði þegar skorið niður í leiðarkerfinu árið 2018 og fækkað flugferðum.

Í tilkynningu sem Sulaiman Yaqoobi, flugrekstrarstjóri félagsins, sendi starfsmönnum sínum kemur fram að árið 2019 verður enn meira krefjandi fyrir Etihad Airways og verður nauðsynlegt að auka niðurskurðinn enn frekar.

Etihad Airways lagði inn pöntun til Airbus árið 2013 í 36 meðalstórar þotur, 10 af gerðinni Airbus A320neo og 26 af gerðinni Airbus A321neo en félagið ætlar að hætta við minni tegundina.

Félagið segir að stefnan sé hinsvegar að taka við stærri gerðinni, Airbus A321neo þotunum tuttugu og sex, þar sem sú þota gæti opnað dyrnar að nýjum mörkuðum og skilað félaginu hagnaði með lengra flugdrægi og lægri eldsneytiskostnaði.

Á síðastliðnum fimm árum hefur rekstur félagsins gengið erfiðlega og tapaði félagið 179 milljörðum króna árið 2017 og er sagt að ástæða þess sé tilkomin að mestu vegna fjárfestinga í öðrum flugfélögum á borð við Air Berlin, Darwin Airlines og Alitalia.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga