flugfréttir
Aftur náðu farþegar að bóka ódýrt flug á fyrsta farrými
- Tvær vikur síðan að svipuð villa kom upp hjá Cathay Pacific
Flugvélar Cathay Pacific á flugvellinum í Hong Kong
Aftur hefur komið upp villa í bókunarkerfi hjá flugfélaginu Cathay Pacific sem gaf farþegum kost á því að bóka flug á fyrsta farrými á brunaútsöluverði en aðeins eru tvær vikur frá því að nokkrum farþegum tókst að bóka flug fram og til Bandaríkjanna fyrir aðeins 70.000 krónur sem var meira en tífallt lægra verð.
Í dag voru einhverjir farþegar sem náðu að krækja sér í flug frá Lissabon í Portúgal til Hong Kong á fyrsta farrými
fyrir 190.000 krónur en hefðbundið verð fyrir slíkt fargjald er um 1,9 milljón krónur með millilendingu
í Frankfurt, London eða Zurich með öðrum flugfélögum.
Talsmaður Cathay Pacific segir að félagið hafi brugðist við þegar í stað og stöðvað söluna á miðunum
á meðan að villan var lagfærð en fyrir þá farþega sem náði að bóka flugið þá býður flugfélagið þeim
velkomið um borð.
Nokkur neyðarlegt tilvik hafa komið upp hjá Cathay Pacific að undanförnu en til að mynda lenti félagið í því að tölvuárás
var gerð á tölvukerfi félagsins sem varð til þess að farþegaupplýsingum um 9,4 milljón farþega, sem
hafa flogið með félaginu, var lekið á Netið og þá var gerð stafsetningarvilla í fyrra við málun á nafni félagsins á einni af farþegaþotu flotans og stóð á vélinni „Cathay Paciic“ þar sem eitt „F-ið“ gleymdist.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.