flugfréttir
Atlantic Airways og KLM í samstarf
Airbus A319 þota Atlantic Airways og Embraer-þota KLM í fjarska
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways og hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines hafa gert samkomulag um sameiginlega sölu á farmiðum og munu farþegar því geta flogið í leiðarkerfi beggja félaganna á sömu bókun.
Með þessu geta Færeyingar bókað flug með Atlantic Airways til Kaupmannahafnar og flogið þaðan áfram með KLM
en samstarfið nær yfir flug Atlantic Airways frá Vágar í Færeyjum til Kaupmannahafnar, Bergen, Billund og Edinborgar.
„Færeyjar er taldar vera einn fallegasti og áhugaverðasti áfangastaðurinn á Norðurlöndum og það er stefna
Atlantic Airways að tengja eyjarnar við umheiminn. Þar af leiðandi erum við mjög spennt fyrir þessu samstarfi
við eitt stærsta flugfélag heims“, segir Jóhanna á Bergi, framkvæmdarstjóri Atlantic Airways.
Hvorki Atlantic Airways né KLM fljúga hinsvegar beint flug á milli Færeyja og Amsterdam en félögin fljúga bæði
til Kaupmannahafnar, Bergen, Billund og til Edinborgar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.