flugfréttir

Herþotur til móts við Boeing 777 fraktþotu

- Segja að flugvélin hafi farið gegnum lofthelgina án leyfis

16. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:29

Boeing 777-200F þotan í farflugshæð

Herþotur frá indónesíska flughernum voru ræstar út til þess að fljúga til móts við Boeing 777 fraktþotu frá Ethiopian Cargo sem var gert að lenda hið snarasta á þeim forsendum að hún hefði ekki heimild til að fljúga í gegnum indónesísku lofthelgina.

Atvikið átti sér í gær en fraktþotan var á leið frá Addis Ababa til Singapore í brýnni sendiför með þotuhreyfil sem þurfti á tafarlausri viðgerð að halda.

Herþotan gaf flugmönnunum fyrirmæli um að lenda í Batam á samnefndri eyju, skammt suður af Singapore, en Ethiopian Airlines segir að þotan hafi verið að fljúga í gegnum lofthelgina samkvæmt reglugerðum Chicago-sáttmála Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem tilgreinir að flugvél, sem er ekki í áætlunarflugi, eigi að fá að fljúga í gegnum lofthelgi án sérstaks leyfis.

Flugfélagið tekur fram að viðeigandi stjórnvöld geti farið fram á að flugvél í yfirflugi lendi á næsta flugvelli samkvæmt skipun ef svo ber undir.

Flugvélin var ekki í áætlunarflugi þar sem um sérstakt verkefni var um að ræða sem kom upp í skyndi en flugmennirnir enduðu á hóteli og hvíldu sig áður en förinni var heitið áfram til Singapore. Samkvæmt Flightradar24.com kemur hinsvegar fram að flugvélin fór frá Batam til Hong Kong í stað Singapore.

Ljósmynd sem flugmaður herþotunnar tók af fraktþotunni á leiðinni til Batam







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga