flugfréttir
Flybe selur afgreiðslupláss á Gatwick til Vueling
Embraer ERJ145LR þota Flybe á Gatwick-flugvellinum
Breska flugfélagið Flybe hefur selt nokkur afgreiðslupláss sín á Gatwick-flugvellinum í London til spænska lágfargjaldafélagsins Vueling.
Vueling hefur keypt plássin fyrir um 700 milljónir króna og er salan gerð í samræmi við breytingar
á áætlun félagsins sem hættir að fljúga frá Gatwick til Newquay en félagið mun færa það flug yfir á London Heathrow.
IAG (International Airlines Group), móðurfélag Vueling, sem einnig á British Airways og Iberia, mun greiða
fyrir plássin en þess má geta að árið 2013 seldi Flybe 25 afgreiðslupláss á London Gatwick til easyJet fyrir um
3,1 milljarð króna.
Tilkynnt var um helgina að Virgin Atlantic og Stobart Aviation hafi keypt allan hlut í Flybe og mun nýtt flugfélag,
Connect Airways, taka yfir allan rekstur Flybe.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.