flugfréttir
Fyrsta skóflustungan að nýrri verksmiðju fyrir Airbus A220
Frá fyrstu skóflustungunni í dag í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum
Airbus hefur tekið fyrstu skóflustunguna að nýrri flugvélaverksmiðju fyrir Airbus A220 þotuna sem verður framleidd í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum en Airbus hefur nú þegar eina samsetningarverksmiðju í Mobile þar sem Airbus A320 þotuna er framleidd.
„Þegar við gerðum samningin við Bombardier þá var það alltaf ætlunin frá fyrstu mínútu að A220 þotan yrði
framleidd í Bandaríkjunum“, sagði Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus við hátíðlega athöfn.
Meðal þeirra sem voru viðstaddir fyrstu skóflustunguna var Tom Enders og Guillaume Faury, yfirmaður yfir
farþegaþotudeild Airbus, ásamt öðrum yfirmönnum og starfsfólki Airbus en um 700 manns voru viðstaddir
athöfnina.
Airbus hefur nú þegar hafist handa við að reisa annan samsetningarsal í Mobile til að auka afkastagetuna á framleiðslunni á Airbus A320 og A321 þotunni en Airbus stefnir á að hefja samsetningu á fyrstu Airbus A220 þotunni í Alabama um mitt árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.