flugfréttir

Boeing 777-200LR send í niðurrif í fyrsta sinn

- Var sjö ár í flota Air India og fjögur ár hjá Etihad Airways

18. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:21

A6-LRC í aðflugi að flugvellinum í Los Angeles árið 2016

Á næstu dögum hefst niðurrif á fyrsta Boeing 777-200LR þotunni sem verður rifin í varahluti en -200LR tegundin er ein langdrægasta farþegaþota heims.

Boeing 777-200LR getur flogið yfir 8.550 mílur (nm) sem samsvarar 15.800 kílómetrum og hefur slík þota flugdrægi til þess að fljúga beint flug frá Keflavíkurflugvelli til Perth í Ástralíu.

Það er Etihad Airways sem hefur ákveðið að losa sig við tvær Boeing 777-200LR þotur og eru þetta fyrstu þoturnar af þessari gerð sem flugfélag hættir með og færir í geymslur en breska fyrirtækið AJW Group hefur keypt aðra þotuna sem ber skráninguna A6-LRC.

Þeirri þotu var flogið til Bretlands þann 12. janúar og verður hún rifin niður á næstunni en Etihad Airways hefur nú þegar tekið fjórar Boeing 777-200LR þotur úr umferð sem hafa verið færðar í geymslu en flugvélarnar voru framleiddar árið 2007 og 2008.

Báðar 777-200LR þoturnar voru upphaflega afhentar nýjar til Air India sem losaði sig við þær eftir að Etihad Airways festi kaup á þeim árið 2014.

AJW Group ætlar sér að nota varahluti úr vélunum og selja þá til þeirra flugrekenda sem þurfa á slíkum varahlutum að halda fyrir aðrar Boeing 777 þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga