flugfréttir

Engin pressa á Airbus að bregðast við Boeing 797

- „Við þurfum ekki að fylla upp í neitt gat hjá okkur“

21. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:08

Guillaume Faury, forstjóri yfir farþegaþotudeild Airbus

Airbus segir að ekki standi til að bregðast við fyrirhugaðri nýrri þotu sem Boeing ætlar sér að koma með á markaðinn sem fengið hefur vinnsluheitið Boeing 797.

Guillaume Faury, forstjóri yfir farþegaþotudeild Airbus, segir að Boeing 797 sé einingis hugmynd hjá Boeing og er enn ekki komin staðfesting á að sú þota fari í framleiðslu og sé sú þota svar Boeing við markaði sem er nú þegar stjórnað af Airbus.

Síðastliðin ár hefur verið rætt um „gat“ sem myndaðist eftir að hætt var að framleiða Boeing 757 þar sem engin þota er framleidd í dag sem brúar bilið frá Boeing 737 MAX 10 upp í minnstu útgáfuna af Dreamliner-þotunni, Boeing 787-8.

Airbus vill meina að vinsældir Airbus A321neo endurspegli að Airbus hafi náð að fylla í gatið þar sem mörg flugfélög, sem hafa haft Boeing 757 í flota sínum, hafa pantað A321neo eða langdrægu útgáfuna, Airbus A321LR.

A321LR tilraunarþota Airbus

„Staðan er sú að þeir hafa tapað þessum markaði þar sem þeir hafa ekki lengur réttu vöruna. Þeir telja sig þurfa að gera eitthvað í málunum og bregðast við því með nýrri flugvél og það er þeirra að taka næsta skref“, segir Faury.

Boeing hefur hinsvegar aðra sýn á málinu þar sem stjórn Boeing sér fram á þörf fyrir nýja farþegaþotu með sætum fyrir 200 til 270 farþega með flugdrægi upp á 5.000 nm (9.300 kílómetra) en Boeing sagði í fyrra að árið 2019 verði tekin ákvörðun um hvort að ný farþegaþota verður að veruleika.

Boeing hafði yfirráð yfir markaðnum í mörg ár með Boeing 757

Boeing átti markaðinn í mörg ár með Boeing 757 ásamt stærri þotunni, Boeing 767, en báðar þoturnar eru enn vinsælar meðal flugfélaga en vegna aldurs vélanna þá neyðast flugfélögin til þess að skipta þeim út fyrir nýjar og sparneytnari þotur með hagkvæmari hreyflum.

Hvað varðar Boeing 767 þá hafa flest flugfélög annaðhvort skipt yfir í Dreamliner en einnig hafa sum pantað Airbus A330 og einnig A330neo.

Framleiðslu á Boeing 757 var hætt árið 2004

Er kemur að staðgengli fyrir Boeing 757 þá hafa flugfélög þurft að leysa þá þotu af hólmi með Airbus A321neo þrátt fyrir að Boeing telur að Boeing 737 MAX geti flogið yfir 90% af öllum þeim flugleiðum í heiminum sem hafa verið farnar með Boeing 757.

Airbus er einnig að skoða hugmyndir með að koma með enn langdrægari útgáfu af Airbus A321LR sem nefnist A321LRX en Faury vill ekki gefa upp neinar upplýsingar varðandi þá þotu.

„Við höfum ekkert gat til þess að fylla í þar sem það úrval flugvéla sem við höfum upp á að bjóða ná yfir alla þá flugdrægni sem flugfélögin þurfa. Þessvegna þurfum við ekkert að bregðast við útspili frá Boeing. Við munum bara bíða og sjá hvað gerist“, segir Faury.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga