flugfréttir
Stöðvaðist í snjóskafli í lendingu í Ölpunum
- Fimm manns um borð sluppu með meiðsli
Flugvélin var að lenda á Courcevel-flugvelli eftir flug frá Toussus-le-Noble í Versölum
Eins hreyfils flugvél af gerðinni Piper PA-46 Malibu Mirage rann út af flugbraut í lendingu og endaði í snjóskafli á flugvellinum í skíðabænum Courchevel í Frakklandi í gær.
Flugvélin var að lenda eftir flug frá Toussus-le-Noble í Versölum, í nágrenni Parísar, en flugmaðurinn
náði ekki að stöðva flugvélina af í lendingarbruninu og endaði hún með með nefið beint inn í snjóskafli
við brautarendann á töluverðum hraða.
Skíðafólk í nágrenni vallarins urðu vitni að atvikinu og var einn sem náði því á meðfylgjandi
myndband. Fimm manns voru um borð í flugvélinni og slösuðustu fjórir af þeim lítillega og voru þeir sendir á
sjúkrahús en flugvélin er mikið skemmd.
Fjórir af þeim fimm sem voru í flugvélinni voru fluttir með minniháttar meiðsl á sjúkrahús
Courchevel-flugvöllurinn þjónar þekktri skíðaparadís í Frönsku Ölpunum og er völlurinn
vel þekktur fyrir sérstakt aðflug að stuttri flugbraut sem liggur í töluverðum halla en margar
einkaflugvélar fljúga daglega til vallarins auk auðmanna sem fljúga á einkaþotum til staðarins til að bregða sér á skíði.
Engir aðflugsvitar eru að flugbrautinni sem gerir flugvöllinn varasaman í erfiðu veðri
á borð við þoku og lágri skýjahæð og þar að auki þá liggur flugvöllurinn þvert yfir dal með háar fjallshlíðar
beggja megin við.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.