flugfréttir

Fékk ekki leyfi til að lenda í Kína og var snúið við eftir 5 tíma flug

- Þotna frá Air New Zealand var hálfnuð á leið til Shanghai

10. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:37

Boeing 777 þota Air New Zealand

Farþegaþota af gerðinni Boeing 787 frá Air New Zealand, sem var á leið frá Auckland á Nýja-Sjálandi til Shanghai í Kína í gær (laugardar), neyddist til þess að snúa við þar sem í ljós kom að flugvélin hafði ekki leyfi til þess að lenda í Kína.

Flugvélin fór í loftið frá Auckland klukkan 10:47 í gær að íslenskum tíma en þegar hún var búin að vera í 5 klukkustundir á flugi þurfti hún að snúa við þegar hún var komin lengst inn á Filippseyjahaf, skammt norður af Papúa Nýju-Gíneu, en þá var hún hálfnuð til Shanghai.

Farþegar um borð sögðu að flugstjórinn hefði tilkynnt þeim að flugvélin hefði ekki leyfi til þess að lenda í Shanghai og var því eina lausnin í stöðunni að snúa aftur við til Nýja-Sjálands þar sem flugvélin lenti 5 tímum síðar en flugtíminn frá Auckland til Shanghai eru um 11 klukkustundir.

„Það kemur á óvart að Air New Zealand sendir heila þotu af stað, fulla af farþegum, án þess að vera með á hreinu hvort að flugvélin fái að lenda í Shanghai“, segir prófessor einn við háskólann í Shanghai.

Í yfirlýsingu frá flugfélaginu kemur fram að um vandamál við skrifræði varðandi tæknileg atriði hafi verið að ræða sem kom í veg fyrir að þessi tiltekna flugvél gat lent á kínverskri grundu samkvæmt reglugerðum.

Kínverjar sagðir sérstaklega strangir er kemur að flugi til landsins

Sérfræðingur einn í flugmálum segir að það þurfi ekki annað en að félagið hafi sent aðra flugvél með annarri skráningu eða Boeing 787-9 í stað Boeing 777 og sé það nóg til þess að félagið fái ekki leyfi til þess að lenda í Kína.

Farþegar fengu skilaboð við komuna til Nýja-Sjálands um að búið væri að bóka þá með öðru flugi sem fer í loftið í kvöld.

Fram kemur að Kínverjar sé sérstaklega strangir er kemur að alþjóðaflugi til og frá landsins og þá sérstaklega vegna þess hversu stór hluti lofthelginnar tilheyri hernum og flugi á vegum kínverska flughersins og verði öll pappírsvinna að vera á hreinu.

Farþegar fengu skilaboð við komuna til Nýja-Sjálands um að búið væri að bóka þá með öðru flugi sem fer í loftið í kvöld.

Sama flug, NZ289, þurfti einnig að snúa við á leið sinni til Shanghai þann 24. ágúst í fyrra en talsmaður Air New Zealand, segir að ástæða þess hafi verið vegna viðhaldsmála en ekki vegna pappírsvinnu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga