flugfréttir
Boeing 737-700 fara brátt úr flota KLM
Boeing 737-700 þota KLM Royal Dutch Airlines
KLM Royal Dutch Airlines mun í vor byrja að losa sig við fyrstu Boeing 737-700 þoturnar en sú fyrsta mun yfirgefa flotann þann 1. maí næstkomandi.
Fyrsta þotan af þessari gerð sem fer út flotanum er PH-BGE en hún var afhent ný til KLM í ágúst
árið 2008 en félagið hefur sautján Boeing 737-700 þotur í flotanum.
PH-BGE mun öðlast áframhaldandi líf í flota Luxair sem mun taka við þotunni en KLM hefur
notað Boeing 737-700 þoturnar í flugi frá Amsterdam til áfangastaða í Evrópu.
Boeing 737-800 þotur munu leysa 737-700 af hólmi en félagið hefur samtals 49 Boeing 737 þotur
í flotanum af gerðinni 737-700, 737-800 og Boeing 737-900.
Þá hafði félagið einnig Boeing 737-300 í flotanum frá árinu 1986 til 2011
og Boeing 737-400 frá 1989 til 2011.
Seinasta Boeing 737-700 þotan hjá KLM mun fara úr flotanum árið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.