flugfréttir
Annað stærsta flugfélag Pakistan gjaldþrota
- Shaheen Air var stærsta einkarekna flugfélagið í Pakistan
Airbus A330 breiðþota Shaheen Air
Shaheen Air, annað stærsta flugfélag Pakistans, hefur tilkynnt að það muni hætta rekstri vegna skorts á fjármagni og vegna skulda.
Imran Aziz, forstjóri Shaheen Air, tilkynnt 2.800 starfsmönnum um helgina um að félagið myndi
hætta rekstri, skella í lás og lýsa yfir gjaldþroti á næstu dögum.
Félagið hætti öllu farþegaflugi í október 2018 eftir að pakistönsk flugmálayfirvöld sviptu félagið
flugrekstrarleyfinu vegna skulda upp á 1,1 milljarð króna en þá var búið að kyrrsetja
allar Airbus-þoturnar átta og hefur þeim verið skilað til flugvélaleigunnar AerCap á Írlandi.
Shaheen Air hafði sextán þotur í flotanum
Fram kemur að Shaheen Air hafi ekki greitt starfsfólki sínu laun sl. 8 mánuði og segir meðal
annars í tilkynningu: „Okkur þykir það mjög leiðinlegt að við höfum ekki geta fundið leið
út úr þessari krísu“.
Shaheen Air var einkarekið flugfélagið, stofnað árið 1993, en félagið hafði sextán þotur í flotanum
þegar mest var og skilaði félagið inn hagnaði til ársins 2014 en eftir þá hafði félagið verið rekið
með tapi.
Árið 2018 var sérstaklega erfitt fyrir Shaheen Air og hafði félagið lengi barist fyrir því að halda
sér sér gangandi og í október var félaginu gert að tæma höfuðstöðvarnar og flytja starfsemina
úr flugskýli sínu á flugvellinum í Karachi.
Shaheen Air, var eins og áður sagði annað stærsta flugfélagið í Pakistan en það stærsta
er ríkisflugfélagið, PIA (Pakistan International Airlines).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.