flugfréttir
Delta flýgur fyrsta flugið með Airbus A220
Ein af þeim fjórum Airbus A220-100 þotum sem Delta Air Lines hefur fengið afhentar
Delta Air Lines flaug á dögunum sitt fyrsta farþegaflug með nýju Airbus A220 þotunni sem einnig er þekkt sem CSeries frá Bombardier.
Alls voru þrjú farþegaflug flogin hjá Delta sl. fimmtudag með Airbus A220 en fyrsta flugið var flug frá LaGuardia-flugvellinum í New York til Boston og markar
flugið upphafið að farþegaflugi með Airbus A220 fyrir Delta Air Lines.
Flugið til Boston fór í loftið frá LaGuardia-flugvellinum klukkan 18:00 að staðartíma en annað Delta-flug
með Airbus A220 var farið frá LaGuardia til Dallas klukkan 19:47 og þriðja Airbus A220 þotan flaug
frá Dallas til New York.
Delta Air Lines á von á 86 Airbus A220 þotum til viðbótar
Delta Air Lines hefur fengið fjórar Airbus A220-100 þotur afhentar af þeim fjörutíu sem pantaðar voru af minni gerðinni en félagið mun á næsta ári fá fyrstu þotuna af fimmtíu af lengri gerðinni, Airbus A220-300.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.