flugfréttir
Sagt að Airbus tilkynni um endalok A380 á fimmtudag
- Engar útistandandi pantanir ef Emirates og Qantas hætta við fleiri risaþotur
Airbus A380 risaþota að koma inn til lendingar
Svo gæti farið að Airbus muni tilkynna um endalok framleiðslunnar á risaþotunni Airbus A380 á fimmtudag.
Slæmar fréttir hafa hrannast upp er varða Airbus A380 en Emirates íhugar að hætta við þær 36 risaþotur sem
flugfélagið á eftir að fá afhentar og skipta
pöntuninni út fyrir aðrar þotutegundir og þá hefur Qantas tilkynnt að félagið þarf
ekki fleiri risaþotur.
Samkvæmt heimildum frá aðilum sem eru kunnugir málinu þá er sagt að Airbus sé búið að taka ákvörðun
um að hætta að framleiða A380 og er greint frá því að Airbus muni tilkynna endalokin formlega á
ársfundi þann 14. febrúar á sama tíma og framleiðandinn mun greina frá afkomu sinni fyrir árið 2018.
Risaþotur Emirates í Toulouse
Ef Emirates og Qantas ætla ekki að taka við fleiri þotum þá er ekkert flugfélag sem á von á risaþotunni
og engin pöntun eftir inni hjá Airbus í ósmíðaðar Airbus A380 þotur.
Sérfræðingar í flugmálum telja að Airbus hafi ofmetið þörfina fyrir risaþotuna en framleiðandinn sá fram á að slík
þota myndi leysa flugvallarvanda fyrir mörg flugfélög á stærstu flugvöllunum í heiminum en flugfélög hafa frekar lagt inn pantanir í stórar tveggja hreyfla þotur á borð við Boeing 777, Airbus A350 og Dreamliner-þotuna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.