flugfréttir
Stigabíll féll saman í Síberíu
Skjáskot úr öryggismyndavél á flugvellinum í Barnaul
Að minnsta kosti fimm slösuðust er stigabíll féll saman þegar farþegar voru að ganga um borð í Airbus-þotu hjá flugfélaginu Ural Airlines á flugvelli í Síberíu í dag.
Atvikið átti sér stað á flugvellinum í borginni Barnaul þegar pallurinn efst á stigabílnum hrundi með þeim
afleiðingum að nokkrir farþegar féllu nokkra metra niður á flughlaðið.
Flytja þurfti a.m.k. þrjá á sjúkrahús í borginni Barnaul en flugvélin var á leið til Sheremetyevo-flugvallarins
í Moskvu.
Á svarthvítri upptöku úr öryggismyndavél má sjá atvikið þegar stigabíllinn gaf sig en tveggja tíma seinkun
varð á fluginu til Moskvu.
Flugvallarfyrirtækið í Barnaul hefur fyrirskipað að framkvæmd verði skoðun á öllum stigabílum á flugvellinum
í kjölfar atviksins en seinast fór fram skoðun á búnaðinum í október 2018.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.