flugfréttir
Kona hljóp nakin inn á flugbraut í Suður-Karólínu
- Loka þurfti flugvellinum í Florence í tvær klukkustundir
Frá Florence Regional flugvellinum í Suður-Karólínu
Loka þurfti fyrir flugumferð á flugvellinum í bænum Florence í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum sl. sunnudag eftir að tilkynnt var um konu sem hljóp nakin um flugvallarsvæðið.
Fram kemur að konan hafi aðeins verið klædd í nærbuxur og hljóp hún yfir eina af flugbraut vallarins sem
var sú braut sem var ekki í notkun.
„Við fengum upplýsingar frá sjónarvotti um að það væri kvenmaður í engum fötum á flugvallarsvæðinu og
sást til hennar hlaupa á flugbrautinni í átt að grindverki“, segir starfsmaður Florence Regional flugvallarins.
Lögregla var kölluð á staðinn ásamt leitarhundum sem fundu konuna þar sem hún lá í felum í frárennslisskurði í jaðri flugvallarins.
Konan var flutt í varðhald niður á lögreglustöð en skömmu síðar var farið með hana á spítala þar sem hún var látin
gangast undir geðrannsókn.
Loka þurfti flugvellinum í tvær klukkustundir á meðan konunnar var leitað og þurfti að beina að minnsta kosti einu flugi á vegum American Eagle til Charlotte vegna atviksins og þá varð seinkun á öðru flugi sem átti að fara í loftið frá Florence.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.