flugfréttir
Þota frá Lion Air fór út af braut í lendingu
- Rann út af flugbraut í mikilli rigningu og slæmu skyggni
Boeing 737-800 þota Lion Air við flugbrautarendann í Pontianak í morgun
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá indónesíska flugfélaginu Lion Air fór út af flugbraut í lendingu á Supadio-flugvellinum í borginni Pontianak á eyjunni Borneó í morgun.
Mikil rigning og slæmt skyggni var á flugvellinum er vélin lenti um kl. 8:10 í morgun að íslenskum tíma eftir flug
frá höfuðborginni Jakarta.
Um borð í flugvélinni voru 182 farþegar og sjö manna áhöfn og sluppu allir heilir á húfi samkvæmt stjórnvöldum í Indónesíu
en þotan fór út af brautarendanum og féll nefhjól hennar saman.
Atvikið átti sér stað kl. 8 í morgun
Þotan, sem ber skráninguna PK-LPS, er aðeins 8 mánaða gömul en hún var afhent ný frá Boeing-verksmiðjunum
í Renton til Lion Air sl. sumar og flaug sitt fyrsta flug þann 19. júní í fyrra.
Rúmir þrír mánuðir eru liðnir frá því að Boeing 737 MAX þota frá sama flugfélagi fórst skömmu eftir flugtak frá Jakarta
með þeim afleiðingum að allir 189 sem voru um borð í flugvélinni létu lífið.
Lion Air hefur gengið í gegnum óvenju mörg flugslys og flugatvik sl. ár og hafa 16 óhöpp og slys átt sér stað í sögu félagsins
frá árinu 2002 en félagið var stofnað árið 2000.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.