flugfréttir
Heathrow nær samkomulagi við flugfélög
Flugvélar British Airways á Heathrow-flugvellinum í London
Heathrow-flugvöllur hefur náð að gera tímamótasamning við þau flugfélög sem fljúga til flugvallarins sem á bæði eftir að skila flugvellinum milljónum sterlingspunda í tekjur sem verða notaðar í stækkun flugvallarins og á sama tíma mun það skila flugfélögunum hagstæðari kjörum í lendingargjöldum.
Samningaviðræður við flugfélögin á Heathrow hafa staðið yfir í nokkra mánuði en samningurinn mun hvetja flugfélög
til þess að fljúga fleiri farþegum til flugvallarins áður en framkvæmdir við stækkun hefjast.
Eins og staðan er í dag þá er sætanýtingin hjá flugfélögunum, sem fljúga til London Heathrow, minni en meðaltalið
meðal flugfélaga á heimsvísu samkvæmt tölfræði frá Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA).
Ef flugfélög ná að fylla betur í sætin og ná meðaltalinu þá er stjórn Heathrow-flugvallar tilbúin til þess að lækka
farþegagjöld um allt að 20 prósent m.a.v. hefðbundna hækkun sem væri annars framundan en það mun einnig uppfylla kröfur og væntingar bresku ríkisstjórnarinnar sem vill sjá betri sætanýtingu um borð í hverri flugvél sem fer um flugvöllinn.
Ef bresk flugmálayfirvöld gefa grænt ljós fyrir þessu samkomulagi mun núverandi samkomulag verða framlengt fram
í desember árið 2021 og yrði því ekki nauðsynlegt að ræða frekari breytingar sem annars hefðu áhrif á flugfélögin
með tilheyrandi hækkunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.